Benedikt Jóhannesson

Benedikt Jóhannesson

Þingseta

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2016–2017 (Viðreisn).

Fjármála- og efnahagsráðherra 2017.

Æviágrip

Fæddur í Reykjavík 4. maí 1955. Foreldrar: Jóhannes Zoëga (fæddur 14. ágúst 1917, dáinn 21. september 2004) hitaveitustjóri í Reykjavík og Guðrún Benediktsdóttir (fædd 10. október 1919, dáin 15. desember 1996) húsfreyja, dóttir Benedikts Sveinssonar alþingismanns. Maki: Vigdís Jónsdóttir (fædd 11. mars 1955) aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis. Foreldrar: Jón I. Bjarnason og Guðbjörg Lilja Maríusdóttir. Börn: Steinunn (1978), Jóhannes (1980), Jón (1988).

Stúdentspróf MR 1975. B.Sc.-próf í stærðfræði með hagfræði sem aukagrein frá University of Wisconsin 1977. MS-próf í tölfræði frá Florida State University 1979. Doktorspróf í tölfræði sem aðalgrein og stærðfræði sem aukagrein frá Florida State University 1981.

Kennsla við Verslunarskóla Íslands 1982–1986. Stofnaði árið 1984 ráðgjafarfyrirtækið Talnakönnun og stýrði því til 2016. Framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins Heims 2000–2016. Ritstjóri Skýja 2005–2016 og Vísbendingar 2006–2016. Hefur setið í og gegnt formennsku í allmörgum stjórnum fyrirtækja, nefndum og ráðum. Fjármála- og efnahagsráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017.

Formaður Viðreisnar frá stofnun vorið 2016 til 2017.

Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2016–2017 (Viðreisn).

Fjármála- og efnahagsráðherra 2017.

Efnahags- og viðskiptanefnd 2016–2017 (formaður).

Æviágripi síðast breytt 30. nóvember 2017.

Áskriftir