Pawel Bartoszek

Pawel Bartoszek

Þingseta

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2016–2017 (Viðreisn).

Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður mars og nóvember 2018 (Viðreisn).

Æviágrip

Fæddur í Poznan, Póllandi, 25. september 1980. Foreldrar: Stanislaw Jan Bartoszek (fæddur 20. júní 1956) sérfræðingur hjá Valitor og Emilia Mlynska (fædd 7. ágúst 1957) náms- og starfsráðgjafi hjá Mími og kennsluráðgjafi hjá grunnskólum Reykjavíkur. Maki: Anna Hera Björnsdóttir (fædd 11. janúar 1980) danskennari og sérfræðingur hjá Landsbankanum. Foreldrar: Björn Karlsson og Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir. Synir: Ágúst (2008), Ólafur Jan (2012).

Stúdentspróf MR 2000. BS-próf í stærðfræði frá HÍ 2003. Meistarapróf í stærðfræði frá HÍ 2005.

Pistlahöfundur á Deiglan.is frá 2002, pistlahöfundur á Fréttablaðinu 2010–2016. Einn þriggja höfunda skólaorðabókarinnar Íslensk-pólsk/pólsk-íslensk 2006. Aðjúnkt við HR 2006–2010. Fulltrúi í stjórnlagaráði, formaður nefndar C, 2011. Verkefnastjóri hjá Qlik Datamarket 2012–2016.

Í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna 2007–2009.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2016–2017 (Viðreisn).

Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður mars og nóvember 2018 (Viðreisn).

Allsherjar- og menntamálanefnd 2016, umhverfis- og samgöngunefnd 2017.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2017, Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2017.

Æviágripi síðast breytt 27. nóvember 2018.

Áskriftir