Hildur Sverrisdóttir

Hildur Sverrisdóttir
  • Embætti: Formaður þingflokks
  • Kjördæmi: Reykjavíkurkjördæmi suður
  • Þingflokkur: Sjálfstæðisflokkur
  • 849-2491

Þingseta

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2017 og síðan 2021 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður desember 2016 til janúar 2017, apríl, október og nóvember 2018, júní og desember 2019 og júní 2020 (Sjálfstæðisflokkur).

Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins síðan 2023.

Æviágrip

Fædd í Stokkhólmi 22. október 1978. Foreldrar: Sverrir Einarsson (fæddur 29. júlí 1948, dáinn 13. apríl 1998) kennari og rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og Rannveig Auður Jóhannsdóttir (fædd 7. ágúst 1949) kennari og lektor á menntavísindasviði HÍ.

Stúdentspróf MH 2000. Lögfræðipróf HR 2008. Hdl. 2009.

Framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar 1997–2000. Starfsmaður á lögmannsstofunni Ambrose Appelbe Solicitors í Lundúnum 2001–2003. Framkvæmdastjóri V-dagssamtakanna gegn kynferðisofbeldi 2004–2007. Framkvæmdastjóri Reykjavík Dance Festival 2007. Lögfræðingur og lögmaður hjá 365 2007–2012. Varaborgarfulltrúi 2010–2016. Ritstjóri bókarinnar Fantasíur 2012. Bakþankapistlahöfundur Fréttablaðsins 2013–2016. Borgarfulltrúi 2016–2017. Aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2018–2021.

Sat í umhverfisráði, skipulags- og samgönguráði, stjórnkerfis- og lýðræðisráði og mannréttindaráði Reykjavíkurborgar 2010–2017. Formaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Sjálfstæðisflokksins síðan 2016.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2017 og síðan 2021 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður desember 2016 til janúar 2017, apríl, október og nóvember 2018, júní og desember 2019 og júní 2020 (Sjálfstæðisflokkur).

Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins síðan 2023.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017 og 2021–, velferðarnefnd 2017, atvinnuveganefnd 2021–2023, framtíðarnefnd 2021–2023.

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2021– (formaður).

Æviágripi síðast breytt 18. september 2023.

Áskriftir