Þórarinn Ingi Pétursson
Nefndasetur:
Þingstörf og hagsmunaskrá
Þingseta
Alþingismaður Norðausturkjördæmis (Framsóknarflokkur) síðan júlí 2021.
Varaþingmaður Norðausturkjördæmis janúar–febrúar, febrúar og október 2018, janúar–febrúar, mars–maí, maí–október, október–nóvember 2019, nóvember 2019 – apríl 2020, janúar–maí 2021 og maí–júlí 2021 (Framsóknarflokkur).
Æviágrip
Fæddur á Akureyri 22. ágúst 1972. Foreldrar: Pétur Þórarinsson (fæddur 23. júní 1951, dáinn 1. mars 2007) prestur og bóndi og Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir (fædd 10. ágúst 1950) hjúkrunarfræðingur. Maki: Hólmfríður Björnsdóttir (fædd 8. janúar 1974) grunnskólakennari og bóndi. Foreldrar: Björn Andrés Ingólfsson og Ólína Helga Friðbjörnsdóttir. Börn: Pétur (1997), Katla (1999), Ingólfur Birnir (2001).
Búfræðingur frá Hólaskóla 1994.
Sauðfjárbóndi 1994–. Í sveitarstjórn Grýtubakkahrepps 2018–2021.
Í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda 2007. Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda 2012–2016. Formaður landbúnaðar- og umhverfisnefndar Grýtubakkahrepps 2018–2021.
Alþingismaður Norðausturkjördæmis (Framsóknarflokkur) síðan júlí 2021.
Varaþingmaður Norðausturkjördæmis janúar–febrúar, febrúar og október 2018, janúar–febrúar, mars–maí, maí–október, október–nóvember 2019, nóvember 2019 – apríl 2020, janúar–maí 2021 og maí–júlí 2021 (Framsóknarflokkur).
Atvinnuveganefnd 2021– (formaður 2023–), umhverfis- og samgöngunefnd 2021–, fjárlaganefnd 2022–2023.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2021–.
Æviágripi síðast breytt 19. september 2023.