Bjarni Bjarnason

Bjarni Bjarnason

Þingseta

Alþingismaður Árnesinga 1934–1942, alþingismaður Snæfellinga 1942 (Framsóknarflokkur).

Minningarorð

Æviágrip

Fæddur að Búðarhóli í Landeyjum 23. október 1889, dáinn 2. ágúst 1970. Foreldrar: Bjarni Guðmundsson (fæddur 24. nóvember 1854, dáinn 9. ágúst 1896) bóndi í Búðarhólshjáleigu og kona hans Vigdís Bergsteinsdóttir (fædd 7. ágúst 1856, dáin 3. september 1937) húsmóðir. Maki 1 (3. júlí 1928): Þorbjörg Þorkelsdóttir (fædd 9. október 1896, dáin 21. apríl 1946) húsmóðir. Foreldrar: Þorkell Hreinsson og kona hans Elín Magnúsdóttir. Maki 2 (26. maí 1950): Anna Jónsdóttir (fædd 22. apríl 1906, dáin 24. júlí 1977) húsmóðir. Foreldrar: Jón Jónatansson alþingismaður og kona hans Kristjana Benediktsdóttir. Börn Bjarna og Þorbjargar: Þorkell (1929), Védís (1931).

Gagnfræðapróf Flensborg 1909. Kennarapróf KÍ 1912. Kennarapróf í íþróttum og sundi við Statens Gymnastikinstitut í Kaupmannahöfn 1914. Námsför til Stokkhólms 1929.

Kennari við barnaskólann í Hafnarfirði 1912–1915, skólastjóri 1915–1929. Jafnframt leikfimikennari við Flensborgarskóla 1912–1927 og íþróttakennari í ýmsum íþróttafélögum í Hafnarfirði. Keypti Straum í Hafnarfirði og rak þar búskap 1918–1930. Skólastjóri Héraðsskólans á Laugarvatni 1929–1959. Jafnframt stundakennari við skóla Björns Jakobssonar, síðar Íþróttakennaraskóla Íslands 1932–1946 og Húsmæðraskóla Suðurlands 1942–1952. Ráðsmaður við skólabúið að Laugarvatni 1935–1953, sjálfur bóndi þar 1953–1962 og átti þar heima til 1967, er hann fluttist til Reykjavíkur.

Formaður Sambands íslenskra barnakennara frá stofnun 1921–1927, í stjórn til 1931. Í miðstjórn Framsóknarflokksins 1933–1956. Gæslustjóri Búnaðarbanka Íslands 1938. Kosinn í landsbankanefnd 10. mars 1938. Í stjórn Íþróttakennaraskóla Íslands 1942–1960. Fulltrúi á aðalfundum Stéttarsambands bænda 1945–1960 og fulltrúi á Búnaðarþingi 1946–1962. Í stjórn Stéttarsambands bænda 1953–1960. Átti sæti í tryggingaráði 1953–1956 og 1959–1967.

Alþingismaður Árnesinga 1934–1942, alþingismaður Snæfellinga 1942 (Framsóknarflokkur).

Gaf út 1969–1970 Suðra, bók í þrem bindum um sunnlensk málefni.

Æviágripi síðast breytt 27. mars 2015.

Áskriftir