Svandís Svavarsdóttir
- Embætti: Innviðaráðherra
- Ráðuneyti:Innviðaráðuneytið
- Kjördæmi: Reykjavíkurkjördæmi suður
- Þingflokkur: Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Þingseta
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2009 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).
Umhverfisráðherra 2009–2012. Umhverfis- og auðlindaráðherra 2012–2013. Heilbrigðisráðherra 2017–2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2021–2022. Matvælaráðherra 2022–2024. Innviðaráðherra síðan 2024.
Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2013–2017.
Æviágrip
Fædd á Selfossi 24. ágúst 1964. Foreldrar: Svavar Gestsson (fæddur 26. júní 1944, dáinn 18. janúar 2021) alþingismaður, ráðherra og sendiherra og Jónína Benediktsdóttir (fædd 5. október 1943, dáin 29. maí 2005) skrifstofumaður. Maki 1: Ástráður Haraldsson (fæddur 27. ágúst 1961) lögmaður. Þau skildu. Foreldrar: Haraldur Þorsteinsson og Aðalheiður Sigurðardóttir. Maki 2: Torfi Hjartarson (fæddur 27. maí 1961) lektor. Foreldrar: Hjörtur Torfason og Nanna Þorláksdóttir. Börn Svandísar og Ástráðs: Oddur (1984), Auður (1986). Börn Svandísar og Torfa: Tumi (1996), Una (2000).
Stúdentspróf MH 1983. BA-próf í almennum málvísindum og íslensku HÍ 1989. Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989–1993.
Leiðbeinandi við Grunnskólann í Hrísey og kennari við Tónlistarskólann í Hrísey 1982–1984. Stundakennari í almennum málvísindum og íslensku við Háskóla Íslands 1990–1994. Starfaði hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992–1994 og við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998–2005. Kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994–1998. Framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2005–2006. Borgarfulltrúi í Reykjavík 2006–2009. Umhverfisráðherra 10. maí 2009 til 1. september 2012. Fór með menntamálaráðuneytið í fæðingarorlofi Katrínar Jakobsdóttur 31. maí til 31. október 2011. Umhverfis- og auðlindaráðherra 1. september 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013. Heilbrigðisráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Matvælaráðherra 1. febrúar 2022 til 9. apríl 2024. Innviðaráðherra síðan 9. apríl 2024.
Formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík 2003–2005. Varafulltrúi í menntaráði Reykjavíkurborgar 2004–2006. Í stjórn ÍTR 2005–2006. Í menntaráði og leikskólaráði Reykjavíkur 2006–2007. Í skipulagsráði Reykjavíkur 2006–2009. Fulltrúi í Jafnréttisráði 2007–2009. Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2007–2009. Í borgarráði Reykjavíkur 2007–2009. Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkur 2007–2009. Í Þingvallanefnd 2013–2017.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2009 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).
Umhverfisráðherra 2009–2012. Umhverfis- og auðlindaráðherra 2012–2013. Heilbrigðisráðherra 2017–2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2021–2022. Matvælaráðherra 2022–2024. Innviðaráðherra síðan 2024.
Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2013–2017.
Allsherjar- og menntamálanefnd 2013–2014 og 2016–2017, þingskapanefnd 2014–2016, umhverfis- og samgöngunefnd 2014–2016, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa 2021, kjörbréfanefnd 2021.
Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2017. Þingmannanefnd Íslands og ESB 2017.
Æviágripi síðast breytt 10. apríl 2024.