Friðjón Þórðarson

Friðjón Þórðarson

Þingseta

Landskjörinn alþingismaður (Dalasýslu) 1956–1959, alþingismaður Vesturlands 1967–1991 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Vesturlands mars 1962.

Dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni 1980–1983.

1. varaforseti sameinaðs þings 1973–1974 og 1978–1979, 2. varaforseti sameinaðs þings 1974–1978 og 1979.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Breiðabólstað á Fellsströnd 5. febrúar 1923, dáinn 14. desember 2009. Foreldrar: Þórður Kristjánsson (fæddur 26. mars 1890, dáinn 19. maí 1967) bóndi og hreppstjóri þar, bróðir Salome ömmu Svavars Gestssonar alþingismanns, og kona hans Steinunn Þorgilsdóttir (fædd 12. júní 1892, dáin 4. október 1984) kennari. Faðir Sigurðar Rúnars varaþingmanns, tengdafaðir Árna M. Mathiesens alþingismanns. Maki 1 (28. október 1950): Kristín Sigurðardóttir (fædd 30. desember 1928, dáin 19. maí 1989) húsmóðir. Foreldrar: Sigurður Lýðsson og kona hans Guðrún Bárðardóttir. Maki 2 (29. júní 1992): Guðlaug Guðmundsdóttir (fædd 14. ágúst 1936, dáin 5. maí 2011) húsmóðir. For.: Guðmundur Halldór Þorláksson og kona hans Ingunn Sigríður Tómasdóttir. Börn Friðjóns og Kristínar: Sigurður Rúnar (1950), Þórður (1952), Helgi Þorgils (1953), Lýður Árni (1956), Steinunn Kristín (1960).

Stúdentspróf MR 1941. Lögfræðipróf HÍ 1947. Hdl. 1948. Hrl. 1991. Náms- og kynnisdvöl við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York september–desember 1949 og við State Police Academy í New Haven, Connecticut, Bandaríkjunum febrúar–júní 1950.

Hóf störf hjá Ragnari Jónssyni hæstaréttarlögmanni að loknu prófi. Settur bæjarfógeti á Akranesi ágústmánuð 1947. Fulltrúi borgardómarans í Reykjavík 1947–1948. Fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík 1948–1949, 1950–1951 og 1952–1955. Oft settur lögreglustjóri í Reykjavík 1948–1955. Settur bæjarfógeti á Siglufirði 1951–1952. Sýslumaður í Dalasýslu 1955–1965 og 1991–1993. Sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1965–1975. Skipaður 8. febrúar 1980 dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.Stjórnarformaður Sparisjóðs Dalasýslu 1956–1965. Í bankaráði Búnaðarbanka Íslands 1960–1993, formaður 1969–1972. Í hreppsnefnd Stykkishólmshrepps 1966–1970. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1966, 1985, 1987 og 1990. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1967–1974 og 1976, formaður íslensku sendinefndarinnar 1968–1971. Fulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðsins 1974. Fulltrúi Íslands á fundum þingmannanefndar EFTA 1975, 1977 og 1988. Í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1977–1993. Í stjórn Brunabótafélags Íslands frá 1979, formaður 1987, og Vátryggingafélags Íslands síðan 1989. Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1983–1987 og sat aukaþing ráðsins 1988. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985 og 1987–1989, formaður.

Landskjörinn alþingismaður (Dalasýslu) 1956–1959, alþingismaður Vesturlands 1967–1991 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Vesturlands mars 1962.

Dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni 1980–1983.

1. varaforseti sameinaðs þings 1973–1974 og 1978–1979, 2. varaforseti sameinaðs þings 1974–1978 og 1979.

Æviágripi síðast breytt 12. september 2019.

Áskriftir