Ingi Tryggvason

Ingi Tryggvason

Þingseta

Alþingismaður Norðurlands eystra 1974–1978 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Norðurlands eystra mars 1972, janúar–febrúar og nóvember 1973 og maí 1974.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Litlu-Laugum í Reykjadal 14. febrúar 1921, dáinn 22. ágúst 2018. Foreldrar: Tryggvi Sigtryggsson (fæddur 20. nóvember 1894, dáinn 1. desember 1986) bóndi á Laugabóli í Reykjadal og kona hans Unnur Sigurjónsdóttir (fædd 13. júlí 1896, dáin 14. mars 1993), dóttir Sigurjóns Friðjónssonar alþingismanns. Maki (17. október 1951): Anna Septíma Þorsteinsdóttir (fædd 17. október 1921, dáin 22. mars 1986) kennari og húsmóðir. Foreldrar: Þorsteinn Jóhannsson og kona hans Helga Einarsdóttir. Sambýliskona: Unnur Kolbeinsdóttir (fædd 27. júlí 1922, dáin 14. september 2016) kennari. Foreldrar: Kolbeinn Högnason og kona hans Guðrún Jóhannsdóttir. Synir Inga og Önnu: Haukur Þór (1952), Tryggvi (1953), Þorsteinn Helgi (1955), Steingrímur (1960), Unnsteinn (1966).

Kennarapróf KÍ 1942. Kennaranámskeið í Askov á Jótlandi 1946. Nám í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1946–1947 og í The Polytechnic School of Modern Languages í Lundúnum 1947–1948.

Kennari í Lundarreykjadal 1942–1943, við barnaskólann á Eskifirði 1943–1944, skólastjóri barnaskólans í Grenivík 1944–1945, kennari við Héraðsskólann á Laugum 1945–1946 og 1949–1970 og við Gagnfræðaskólann á Siglufirði 1948–1949. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykdæla 1952–1974. Bóndi á Kárhóli í Reykjadal 1955–1986. Ferðaþjónustubóndi á Narfastöðum í Reykjadal frá 1988. Forstöðumaður Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins í Reykjavík 1970–1974.

Í stjórn Sparisjóðs Reykdæla 1952–1982. Í hreppsnefnd Reykdælahrepps 1966–1974. Í stjórn Sambands íslenskra sparisjóða 1967–1981. Í stjórn Stéttarsambands bænda 1969–1987, formaður stjórnarinnar frá 1981. Skipaður 1971 í endurskoðunarnefnd laga um framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl. Í Sexmannanefnd — verðlagsnefnd landbúnaðarins 1972–1987. Í skólanefnd Héraðsskólans á Laugum 1974–1982, formaður 1974–1978. Í tryggingaráði 1974–1978. Í stjórn Landverndar 1975–1981. Í Framleiðsluráði landbúnaðarins 1976–1987, formaður þess frá 1980. Forstöðumaður ullar- og skinnaverkefnis Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins 1978–1980. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1978. Stjórnarformaður Grænmetisverslunar landbúnaðarins 1980–1987. Í stjórn Norrænu bændasamtakanna 1981–1987. Í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins 1982–1990 og í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins 1982–1988. Formaður Félags ferðaþjónustubænda frá 1990.

Alþingismaður Norðurlands eystra 1974–1978 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Norðurlands eystra mars 1972, janúar–febrúar og nóvember 1973 og maí 1974.

Æviágripi síðast breytt 18. nóvember 2019.

Áskriftir