Lilja Alfreðsdóttir

Lilja Alfreðsdóttir

Þingseta

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2016 (Framsóknarflokkur).

Utanríkisráðherra 2016–2017. Mennta- og menningarmálaráðherra 2017–2021. Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra 2021–2022. Menningar- og viðskiptaráðherra síðan 2022.

Æviágrip

Fædd í Reykjavík 4. október 1973. Foreldrar: Alfreð Þorsteinsson (fæddur 15. febrúar 1944, dáinn 27. maí 2020) fyrrverandi borgarfulltrúi og framkvæmdastjóri og Guðný Kristjánsdóttir (fædd 12. ágúst 1949) prentsmiður. Maki: Magnús Óskar Hafsteinsson (fæddur 5. júní 1975) hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu. Foreldrar: Hafsteinn Óskar Númason og Sigrún Steinþóra Magnúsdóttir. Börn: Eysteinn Alfreð (2007), Signý Steinþóra (2009).

Stúdentspróf MR 1993. Skiptinám í stjórnmálasögu Austur-Asíu við Ewha University, Seúl, 1993–1994. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1998. Skiptinám í þjóðhagfræði og heimspeki við Minnesota University 1998. Meistaragráða í alþjóðahagfræði frá Columbia University, New York, 2001.

Aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta og markaðsmála í Seðlabanka Íslands 2001–2010. Varaformaður menntaráðs Reykjavíkurborgar 2006–2010. Ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington 2010–2013. Aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands 2013–2014. Verkefnastjóri í forsætisráðuneytinu 2014–2015. Aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands 2016. Utanríkisráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. Mennta- og menningarmálaráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021. Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Menningar- og viðskiptaráðherra síðan 1. febrúar 2022.

Varaformaður Framsóknarflokksins síðan 2016.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2016 (Framsóknarflokkur).

Utanríkisráðherra 2016–2017. Mennta- og menningarmálaráðherra 2017–2021. Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra 2021–2022. Menningar- og viðskiptaráðherra síðan 2022.

Efnahags- og viðskiptanefnd 2017, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017.

Íslandsdeild NATO-þingsins 2017.

Æviágripi síðast breytt 1. febrúar 2022.

Áskriftir