Sverrir Hermannsson

Sverrir Hermannsson

Þingseta

Alþingismaður Austurlands 1971–1988 (Sjálfstæðisflokkur), alþingismaður Reykvíkinga 1999–2003 (Frjálslyndi flokkurinn).

Varaþingmaður Austurlands apríl 1964, mars–apríl 1967 og október–nóvember 1968 (Sjálfstæðisflokkur).

Iðnaðarráðherra 1983–1985, menntamálaráðherra 1985–1987.

Forseti neðri deildar 1979–1983. 1. varaforseti neðri deildar 1978–1979.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Svalbarði í Ögurvík 26. febrúar 1930, dáinn 12. mars 2018. Foreldrar: Hermann Hermannsson (fæddur 17. maí 1893, dáinn 26. nóvember 1981) útvegsbóndi þar og kona hans Salóme Rannveig Gunnarsdóttir (fædd 24. apríl 1895, dáin 20. nóvember 1977) húsmóðir. Maki (27. desember 1953): Greta Lind Kristjánsdóttir (fædd 25. júlí 1931, dáin 20. nóvember 2009) húsmóðir. Foreldrar: Kristján Tryggvason og kona hans Margrét Finnbjörnsdóttir. Börn: Hulda Bryndís (1953), Kristján (1956), Margrét Kristjana (1958), Ragnhildur (1960), Ásthildur Lind (1964). Fósturdóttir: Gréta Lind (1973).

Stúdentspróf MA 1951. Viðskiptafræðipróf HÍ 1955.

Starfsmaður Vinnuveitendasambands Íslands 1955–1956. Skrifstofustjóri Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1956–1960. Fulltrúi hjá blaðaútgáfunni Vísi hf. 1960–1962. Hefur starfað að útgerðarmálum með bræðrum sínum. Formaður og framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra verslunarmanna frá stofnun þess 1957–1972. Forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins 1975–1983. Skipaður 26. maí 1983 iðnaðarráðherra, lausn 16. október 1985. Skipaður 16. október 1985 menntamálaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Bankastjóri Landsbanka Íslands 1988–1998.

Formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, 1954–1955. Í stúdentaráði HÍ 1954–1955. Formaður Stúdentafélags Reykjavíkur 1957–1958. Formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna 1957–1972. Stjórnarformaður útgerðarfélagsins Ögurvíkur 1970–1987. Í milliþinganefnd um vöruflutninga 1973–1976 og í milliþinganefnd um dreifingu útvarps og sjónvarps 1976–1977. Í Norðurlandaráði 1975–1983 og 1987–1988. Í stjórn Sjóminjasafnsins 1979–1983. Formaður Frjálslynda flokksins 1998–2003.

Alþingismaður Austurlands 1971–1988 (Sjálfstæðisflokkur), alþingismaður Reykvíkinga 1999–2003 (Frjálslyndi flokkurinn).

Varaþingmaður Austurlands apríl 1964, mars–apríl 1967 og október–nóvember 1968 (Sjálfstæðisflokkur).

Iðnaðarráðherra 1983–1985, menntamálaráðherra 1985–1987.

Forseti neðri deildar 1979–1983. 1. varaforseti neðri deildar 1978–1979.

Allsherjarnefnd 1999–2001.

Skýrt og skorinort. Minningabrot Sverris Hermannssonar, skráð af Indriða G. Þorsteinssyni, komu út 1989. Sverrir — Skuldaskil. Ævisaga Sverris Hermannsonar, skráð af Pálma Jónassyni, kom út 2003.

Æviágripi síðast breytt 14. apríl 2020.

Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur

Áskriftir