Andrés Ingi Jónsson

Fjárhagslegir hagsmunir og trúnaðarstörf utan þings

Launuð störf og tekjumyndandi starfsemi

1) Launuð stjórnarseta í einkareknum eða opinberum félögum. Staða og félag skulu skráð.

  • Engin.

2) Launað starf eða verkefni (annað en launuð þingmannsstörf). Starfsheiti og nafn vinnuveitanda/verkkaupa skulu skráð.

  • Ekkert.

3) Starfsemi sem er rekin samhliða starfi alþingismanns og er tekjumyndandi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er meðeigandi í. Skráð er tegund starfsemi.

  • Ekkert.

Fjárhagslegur stuðningur, gjafir, utanlandsferðir og eftirgjöf skulda

4) Fjárframlag eða annar fjárhagslegur stuðningur frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum, þ.á m. stuðningur í formi skrifstofuaðstöðu eða hliðstæðrar þjónustu, sem fellur utan þess stuðnings sem Alþingi eða flokkur þingmannsins lætur í té, og verðgildi stuðningsins nemur meira en 50 þús. krónum á ári. Enn fremur er skráður fjárhagslegur stuðningur í formi afsláttar af markaðsverði og annars konar ívilnunar að verðgildi meira en 50 þús. krónur sem ætla má að sé veittur vegna setu á Alþingi. Upphæðir fjárframlaga umfram 700 þúsund kr. skulu tilgreindar. Berist þingmanni fleiri en ein greiðsla frá sama aðila sem eru samtals umfram 700 þúsund kr. á einu almanaksári skulu upphæðir þeirra greiðslna einnig tilgreindar. Skráð er hver veitir stuðninginn og hvers eðlis hann er.

  • Ekkert.

5) Gjöf frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum þegar áætla verður verðmæti hennar yfir 50 þús. krónum og ætla má að gjöfin sé veitt út af setu á Alþingi. Skrá skal nafn þess sem gefur, tilefni gjafar, hvers kyns hún er og hvenær hún er látin í té.

  • Engar.

6) Ferðir og heimsóknir innan lands og utan sem geta tengst setu á Alþingi og útgjöldin eru ekki að öllu leyti greidd af ríkissjóði, flokki þingmannsins eða þingmanninum sjálfum. Skrá skal hver stóð undir útgjöldum ferðar, tímabil hennar ásamt nafni áfangastaða.

  • Ráðstefna um íslensku stjórnarskrána 3. júní 2017. Kostnaður við gistingu greiddur af skipuleggjandanum, University of California, Berkeley School of Law.
  • Boðsmiði á alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið var í Hörpu 19.-21. október 2018. Fullur aðgangseyrir var 55 þúsund krónur.
  • Kvennaþing í Úkraínu 7.-8. desember 2018 (Український Жіночий Конгрес). Flug og gisting greidd af landsnefnd UN Women í Úkraínu.
  • Boðsmiði á alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið var í Hörpu 10.-12. október 2019. Fullur aðgangseyrir var 78 þúsund krónur.
  • Morgunverðarfundur vegna útgáfu skýrslu um fæðingarorlof á Norðurlöndunum sem haldinn var í Stokkhólmi 22. október 2019. Flug greitt af skipuleggjendum, Sveriges Kvinnolobby.
  • Boðsmiði á alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið var í Hörpu 14.-17. október 2021. Fullur aðgangseyrir var 300 evrur.
  • Boðsmiði á loftslagsviðburðinn Ok, bye, sem haldinn var í Hörpu sem hluti af Nýsköpunarviku 18. maí 2022. Fullur aðgangseyrir var 149 evrur.
  • Boðsmiði á alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið var í Hörpu 13.-16. október 2022. Fullur aðgangseyrir var 91 þúsund krónur.
  • Boðsmiði á Viðskiptaþing sem haldið var á Hilton Reykjavik Nordica 9. febrúar 2023. Fullur aðgangseyrir var 28.900 kr.
  • Boðsmiði á alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið var í Hörpu 19.-21. október 2023. Aðgangseyrir fyrir ræðufólk var 75 þúsund krónur.
  • Boðsmiði á Viðskiptaþing sem haldið var á Hilton Reykjavík Nordica 8. febrúar 2024. Almennt miðaverð var 29.900 kr.

7) Eftirgjöf eftirstöðva skulda og ívilnandi breytingar á skilmálum samnings við lánardrottinn. Skrá skal lánardrottinn og eðli samningsins.

  • Engin.

Eignir

8) Fasteign, sem er að einum þriðja eða meira í eigu alþingismanns eða félags sem hann á fjórðungshlut í eða meira. Ekki skal skrá íbúðarhúsnæði eða sumarhús til eigin nota fyrir alþingismann og fjölskyldu hans og lóðarréttindi undir slíkt húsnæði. Skráð er heiti landareignar og staðsetning fasteignar.

  • Engin.

9) Heiti félags eða sparisjóðs, sem alþingismaður á hlut í sem fer yfir einhver eftirtalinna viðmiða:

  1. Verðmæti hlutar nemur að markaðsvirði meira en einni milljón króna miðað við 31. desember ár hvert.
  2. Hlutur nemur 1% eða meira í félagi eða sparisjóði þar sem eignir í árslok eru 230 millj.kr. eða meira eða rekstrartekjur 460 millj. kr. eða meira.
  3. Hlutur nemur 25% eða meira af hlutafé eða stofnfé félags eða sparisjóðs.

  • Engin.

10) Heiti sjálfseignarstofnunar í atvinnurekstri, sbr. 3. gr. laga nr. 33/1999, um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, sem alþingismaður á hlut í og fer yfir einhver þeirra viðmiða sem talin eru í a.-c. 9. tölulið.

  • Ekkert

Skuldir

11) Skuldir, sjálfskuldarábyrgðir og aðrar ábyrgðir, sem tengdar eru rekstri fasteignar eða atvinnurekstri félaga, sparisjóða eða sjálfseignarstofnana, sbr. 8.-10. tölul. Skrá skal skuldir og ábyrgðir sem eru hærri en þingfararkaup. Ekki skal skrá fjárhæð skuldar eða skuldir eða ábyrgðir sem stofnað er til í öðrum tilgangi, svo sem vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða, bifreið til eigin nota, námslána eða annarra ráðstafana sem ekki tengjast atvinnurekstri. Jafnframt skal skrá tegund skuldar eða ábyrgðar og skuldareiganda.

  • Ekkert

Samkomulag við fyrrverandi eða verðandi vinnuveitanda

12) Samkomulag við fyrrverandi vinnuveitanda sem er fjárhagslegs eðlis, þar á meðal samkomulag um orlof, launalaust leyfi, áframhaldandi launagreiðslur eða fríðindi, lífeyrisréttindi og ámóta meðan setið er á þingi. Skrá skal gerð samkomulags og nafn vinnuveitanda.

  • Ekkert.

13) Samkomulag um ráðningu við framtíðarvinnuveitanda, óháð því að ráðningin taki fyrst gildi eftir að þingmaður hverfur af þingi. Skrá skal gerð samkomulags og nafn vinnuveitanda.

  • Ekkert.

Trúnaðarstörf

14) Skrá skal upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög önnur en stjórnmálaflokka óháð því hvort þessi störf eru launuð. Skrá skal nafn félags, hagsmunasamtaka, stofnunar eða sveitarfélags og eðli trúnaðarstarfs.

  • Engin.

Síðast breytt 18. apríl 2024