Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Fjárhagslegir hagsmunir og trúnaðarstörf utan þings

Launuð störf og tekjumyndandi starfsemi

1) Launuð stjórnarseta í einkareknum eða opinberum félögum. Staða og félag skulu skráð.

  • Engin

2) Launað starf eða verkefni (annað en launuð þingmannsstörf). Starfsheiti og nafn vinnuveitanda/verkkaupa skulu skráð.

  • Ekkert

3) Starfsemi sem er rekin samhliða starfi alþingismanns og er tekjumyndandi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er meðeigandi í. Skráð er tegund starfsemi.

  • Engin

Fjárhagslegur stuðningur, gjafir, utanlandsferðir og eftirgjöf skulda

4) Fjárframlag eða annar fjárhagslegur stuðningur frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum, þ.á m. stuðningur í formi skrifstofuaðstöðu eða hliðstæðrar þjónustu, sem fellur utan þess stuðnings sem Alþingi eða flokkur þingmannsins lætur í té, og verðgildi stuðningsins nemur meira en 50 þús. krónum á ári. Enn fremur er skráður fjárhagslegur stuðningur í formi afsláttar af markaðsverði og annars konar ívilnunar að verðgildi meira en 50 þús. krónur sem ætla má að sé veittur vegna setu á Alþingi. Upphæðir fjárframlaga umfram 700 þúsund kr. skulu tilgreindar. Berist þingmanni fleiri en ein greiðsla frá sama aðila sem eru samtals umfram 700 þúsund kr. á einu almanaksári skulu upphæðir þeirra greiðslna einnig tilgreindar. Skráð er hver veitir stuðninginn og hvers eðlis hann er.

  • Engin

5) Gjöf frá innlendum og erlendum lögaðilum og einstaklingum þegar áætla verður verðmæti hennar yfir 50 þús. krónum og ætla má að gjöfin sé veitt út af setu á Alþingi. Skrá skal nafn þess sem gefur, tilefni gjafar, hvers kyns hún er og hvenær hún er látin í té.

  • Engar

6) Ferðir og heimsóknir innan lands og utan sem geta tengst setu á Alþingi og útgjöldin eru ekki að öllu leyti greidd af ríkissjóði, flokki þingmannsins eða þingmanninum sjálfum. Skrá skal hver stóð undir útgjöldum ferðar, tímabil hennar ásamt nafni áfangastaða.

  • Boð á ráðstefnuna "Innovating Democracy" í Amsterdam, Hollandi, 30. nóvember - 4. desember 2016. Kostnaður greiddur af Socioneers, Centre for Innovation Leiden University, Netherlands Institute for Multiparty Democracy, Netwerk Democratie og Pakhuis de Zwijger.
  • Fjöldi ferða á vegum Evrópuráðsþingsins en undirrituð er fulltrúi í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins og allar ferðir sem ekki eru greiddar af ríkissjóði eru greiddar af Evrópuráðsþinginu.
  • Þátttaka í alþjóðlegri ráðstefnu á vegum Austrailian University í Kúveit, 28. nóvember - 1. desember 2023. Ferða- og gistikostnaður að andvirði 300.000 kr. greiddur af Austrailian University í Kúveit.

7) Eftirgjöf eftirstöðva skulda og ívilnandi breytingar á skilmálum samnings við lánardrottinn. Skrá skal lánardrottinn og eðli samningsins.

  • Engar

Eignir

8) Fasteign, sem er að einum þriðja eða meira í eigu alþingismanns eða félags sem hann á fjórðungshlut í eða meira. Ekki skal skrá íbúðarhúsnæði eða sumarhús til eigin nota fyrir alþingismann og fjölskyldu hans og lóðarréttindi undir slíkt húsnæði. Skráð er heiti landareignar og staðsetning fasteignar.

  • Engin

9) Heiti félags eða sparisjóðs, sem alþingismaður á hlut í sem fer yfir einhver eftirtalinna viðmiða:

  1. Verðmæti hlutar nemur að markaðsvirði meira en einni milljón króna miðað við 31. desember ár hvert.
  2. Hlutur nemur 1% eða meira í félagi eða sparisjóði þar sem eignir í árslok eru 230 millj.kr. eða meira eða rekstrartekjur 460 millj. kr. eða meira.
  3. Hlutur nemur 25% eða meira af hlutafé eða stofnfé félags eða sparisjóðs.

  • Ekkert

10) Heiti sjálfseignarstofnunar í atvinnurekstri, sbr. 3. gr. laga nr. 33/1999, um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, sem alþingismaður á hlut í og fer yfir einhver þeirra viðmiða sem talin eru í a.-c. 9. tölulið.

  • Ekkert

Skuldir

11) Skuldir, sjálfskuldarábyrgðir og aðrar ábyrgðir, sem tengdar eru rekstri fasteignar eða atvinnurekstri félaga, sparisjóða eða sjálfseignarstofnana, sbr. 8.-10. tölul. Skrá skal skuldir og ábyrgðir sem eru hærri en þingfararkaup. Ekki skal skrá fjárhæð skuldar eða skuldir eða ábyrgðir sem stofnað er til í öðrum tilgangi, svo sem vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða, bifreið til eigin nota, námslána eða annarra ráðstafana sem ekki tengjast atvinnurekstri. Jafnframt skal skrá tegund skuldar eða ábyrgðar og skuldareiganda.

  • Ekkert

Samkomulag við fyrrverandi eða verðandi vinnuveitanda

12) Samkomulag við fyrrverandi vinnuveitanda sem er fjárhagslegs eðlis, þar á meðal samkomulag um orlof, launalaust leyfi, áframhaldandi launagreiðslur eða fríðindi, lífeyrisréttindi og ámóta meðan setið er á þingi. Skrá skal gerð samkomulags og nafn vinnuveitanda.

  • Ekkert

13) Samkomulag um ráðningu við framtíðarvinnuveitanda, óháð því að ráðningin taki fyrst gildi eftir að þingmaður hverfur af þingi. Skrá skal gerð samkomulags og nafn vinnuveitanda.

  • Ekkert

Trúnaðarstörf

14) Skrá skal upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög önnur en stjórnmálaflokka óháð því hvort þessi störf eru launuð. Skrá skal nafn félags, hagsmunasamtaka, stofnunar eða sveitarfélags og eðli trúnaðarstarfs.

  • Varamaður í stjórn Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð

Síðast breytt 16. ágúst 2024

Kostnaður greiddur af Evrópuráðsþinginu 2023–2024

Fjárhæðir kostnaðargreiðslna miðast við hvenær reikningar eru bókaðir á skrifstofu Alþingis.

2024 2023

Ferðakostnaður utan lands
  Flugferðir utan lands
  Gisti- og fæðiskostnaður utan lands
  Dagpeningar
  Annar ferðakostnaður utan lands
Ferðakostnaður utan lands samtals

Þátttaka í alþjóðastarfi 2023–2024, greidd af Evrópuráðsþinginu

Dagsetning Staður Tilefni
17.–18. september 2024 Chisinau, Moldóva Undirbúningur vegna kosningaeftirlits á vegum Evrópuráðsþingsins
9. september 2024 París Hringborðsumræður um leiðina til lýðræðis í Rússlandi
13. júní 2024 Washington D.C. Opinn fundur Helsinkinefndar um pólitíska fanga
20. maí 2024 Lissabon Ráðstefna á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) um öryggi á tímum gervigreindar
13.–14. maí 2024 London Rannsóknarferð á vegum Evrópuráðsþingsins vegna skýrslugerðar um Julian Assange
13.–14. mars 2024 Strassborg Fundur nefndar Evrópuráðsins um gervigreind
12. febrúar 2024 Brussel Rannsóknarferð á vegum Evrópuráðsþingsins vegna skýrslu um skuldbindingar Búlgaríu gagnvart Evrópuráðinu
11.–12. janúar 2024 Helsinki Fundur sérnefndar Evrópuráðsþingsins um lýðræðisöfl í Belarús
20.–21. september 2023 Vilníus Rannsóknarferð á vegum Evrópuráðsþingsins vegna skýrslu um pólitíska fanga í Rússlandi
17.–20. september 2023 Sofia Rannsóknarferð á vegum Evrópuráðsþingsins vegna skýrslu um þróun mála í Búlgaríu
13. mars 2023 London Fundur tengslanets þingmanna Evrópuráðsþingsins um útrýmingu á ofbeldi gegn konum
11. janúar 2023 Strassborg Fundur nefndar Evrópuráðsins um gervigreind