[<] [>]
143. löggjafarþing — 112. fundur.
112. fundur
miðvikudaginn 14. maí 2014
kl. 7.40 síðdegis.

almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Ræðumenn flokkanna voru: Fyrir Samfylkinguna töluðu Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Bjarnadóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þeirri þriðju Guðbjartur Hannesson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra í fyrstu umferð, Guðlaugur Þór Þórðarson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, en í þriðju umferð Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð töluðu Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Bjarkey Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Sigrún Magnúsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þriðju umferð Frosti Sigurjónsson, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Pírata voru Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri en í þriðju umferð Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

[21:57]Útbýting:

Fundi slitið kl. 21:57.