131. löggjafarþing — 16. fundur,  2. nóv. 2004.

Breyting á starfsáætlun Alþingis.

[13:35]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess að á fundi forsætisnefndar í morgun voru samþykktar eftirfarandi breytingar á starfsáætlun Alþingis 2004–2005, vetrarþingi:

Umræðum um starfsskýrslur Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis, sem ræða átti fimmtudaginn 5. nóv. nk., verður frestað þar til síðar.

Nefndarfundir fimmtudaginn 18. nóv. falla niður. Þess í stað verður þingfundur þann sama dag á venjulegum tíma. Þá mun fara fram 2. umr. um fjáraukalög 2004 en ekki þriðjudaginn 16. nóv. eins og starfsáætlun segir.