131. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2005.

Fsp. 3.

[15:20]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svörin. Tvennt fannst mér ekki koma skýrt fram í máli ráðherrans, annars vegar varðandi flugsamgöngur ef af þessum hálendisvegi yrði og hins vegar um fyrirhugaða jarðgangagerð á Tröllaskaga. Ég mælist til þess við hæstv. ráðherra að hann fari um það nokkrum orðum.