131. löggjafarþing — 67. fundur,  7. feb. 2005.

Löggiltir niðurjöfnunarmenn sjótjóns og sala fasteigna, fyrirtækja og skipa.

484. mál
[15:58]

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Frumvarp þetta er samið í dómsmálaráðuneytinu og miðar að því að laga ákvæði laga um löggilta niðurjöfnunarmenn sjótjóns og laga um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa að ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Frumvarpið á rætur að rekja til athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA um að skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 74/1938 um að löggiltur niðurjöfnunarmaður sjótjóns skuli hafa lögheimili hér á landi og skilyrði a-liðar 1. mgr. 2. gr. laga nr. 99/2004 um að maður verði að hafa lögheimili hér á landi til að fá löggildingu ráðherra sem fasteignasali samræmist ekki ákvæðum EES-samningsins um staðfesturétt.

Samkvæmt 31. gr. samningsins skulu engin höft vera á rétti ríkisborgara aðildarríkjanna til að setjast að og stofna til atvinnurekstrar hvar sem er á Evrópska efnahagssvæðinu. Litið hefur verið svo á að skilyrði um lögheimili til að mega stunda atvinnurekstur feli í sér höft og óbeina mismunun sem fái ekki án réttlætingar samrýmst 31. gr. samningsins um staðfesturétt. Með vísan til þessa er lagt til að lögum um löggilta niðurjöfnunarmenn sjótjóns og lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa verði breytt þannig að skilyrði laganna um lögheimili hér á landi gildi ekki um ríkisborgara annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Jafnframt er lagt til að skilyrðið gildi ekki um ríkisborgara aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu og er þörf á þeirri breytingu vegna nýs stofnsamnings samtakanna, Vaduz-samningsins, sem tók gildi 1. júní 2002.

Herra forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjarnefndar.