131. löggjafarþing — 74. fundur,  15. feb. 2005.

Afnám laga um Tækniháskóla Íslands.

398. mál
[15:43]

Frsm. meiri hluta menntmn. (Gunnar Birgisson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það stendur nú hér að hann sé samþykkur áliti þessu, með fyrirvara, og hann var búinn að gera þann fyrirvara. (Gripið fram í.) Það eru eiginlega ný tíðindi fyrir mig að hv. þm. Sigurjón Þórðarson sé allt í einu orðinn andvígur þessu frumvarpi. Ég vildi eiginlega fá betri skýringar hjá þingmanninum um málið. Þetta er orðið mjög sérkennilegt.