131. löggjafarþing — 133. fundur,  11. maí 2005.

Frestun á fundum Alþingis.

816. mál
[12:16]

Kristinn H. Gunnarsson (F) (andsvar):

Herra forseti. Mér er kunnugt um þessa tillögu og hef lýst yfir stuðningi við megininntakið í henni þegar hún hefur verið til umræðu hér áður fyrr.

Ég held að við verðum að átta okkur á því að það getur enginn breytt þessu nema þingmenn sjálfir. Við getum ekki vísað þessu máli neitt annað, við getum ekki vísað því til ríkisstjórnarinnar að breyta þessu. Það er bara þingheimur sjálfur sem getur það, og þessu verður ekki breytt fyrr en þingmenn taka sig saman um að gera það.