132. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2005.

Tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Að loknum atkvæðagreiðslum um fyrstu tvö dagskrármálin hefst umræða utan dagskrár um kjör aldraðra. Málshefjandi er hv. þm. Ögmundur Jónasson. Hæstv. heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.