132. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2005.

Beiðni um utandagskrárumræðu.

[10:35]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Mér þykir vænt um að fá það upplýst hjá hæstv. forseta að til greina komi að við í Frjálslynda flokknum fáum utandagskrárumræðu jafnvel í næstu viku. Mér þætti vænt um að það gæti legið fyrir áður en þessi vika líður hvort svo verður. Það er einfaldlega þannig að við viljum gjarnan vita hvort við eigum að fá að ræða í utandagskrárumræðu þau mál sem við teljum brýn eða ekki og þá helst hvenær.