132. löggjafarþing — 9. fundur,  17. okt. 2005.

Varamaður tekur þingsæti.

[15:00]
Hlusta

Forseti (Rannveig Guðmundsdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 6. þm. Suðurk., Hjálmari Árnasyni, dags. 14. október 2005:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Ísólfur Gylfi Pálmason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.