132. löggjafarþing — 22. fundur,  16. nóv. 2005.

Rannsókn kjörbréfs.

[12:28]
Hlusta

Frsm. kjörbn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd kom saman í gær og fór yfir kjörbréf Guðmundar Magnússonar, 3. varaþm. Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík suður, sem landskjörstjórn gaf út 14. nóvember sl. Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréf Guðmundar Magnússonar verði samþykkt.