132. löggjafarþing — 38. fundur,  7. des. 2005.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[21:30]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Sem oft áður er mér þannig farið að athygli mín dofnar þegar ræðutími er kominn yfir korter, það er kannski minn veikleiki. Vegna þess arna hef ég misst þráðinn í ræðu hv. þingmanns og vildi gjarnan, ef hann gæti, að hann tæki saman í stuttu máli hvert innihaldið var.