132. löggjafarþing — 51. fundur,  25. jan. 2006.

Fréttaþátturinn Auðlind.

383. mál
[12:54]
Hlusta

Jón Kr. Óskarsson (Sf):

Virðulegur forseti. Í sambandi við þessa fyrirspurn tek ég heils hugar undir það að fréttaþátturinn Auðlind verði aftur settur á dagskrá. Ég veit það í gegnum líf mitt og lífsmottó að þessi þáttur var geypilega mikilvægur, sérstaklega fyrir landsbyggðina. Ég hafði alltaf gaman af þeim þætti, að fá fréttir af landsbyggðinni. Og ég tel að ekki síst ungt fólk í landinu þurfi að kynnast þessum grundvallaratvinnuvegi íslenskrar þjóðar, virðulegi forseti.