132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Athugasemd forseta í óundirbúnum fyrirspurnum.

[15:34]
Hlusta

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Ég heyrði í umræðunni að hæstv. fjármálaráðherra hefur mikla trú á aukinni skattheimtu. Það var líka að heyra á hæstv. forseta þingsins að hún hefði mikla trú á ríkisstofnunum.

Mér fannst það svolítið sérstakt í umræðunni, frú forseti, þegar við ræddum um það hvort einhverjir þingmenn bæru traust til Ríkisendurskoðunar að hæstv. forseti lýsti efnislegri afstöðu sinni til þess sem ég spurði hæstv. forsætisráðherra um. Ég furða mig nokkuð á því vegna þess að mér fannst það kannski ekki endilega koma störfum forseta við, frú forseti.