133. löggjafarþing — 7. fundur,  5. okt. 2006.

fjárlög 2007.

1. mál
[10:37]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er á milli þingflokkanna um ræðutíma í umræðunni eins og á síðasta þingi og hann er þessi: Ráðherra hefur 35 mínútur í framsögu sinni, síðan 15 mínútur og í þriðja lagi 10 mínútur. Talsmenn þingflokka hafa 20 mínútur í fyrstu umferð, síðan tvisvar sinnum 10 mínútur. Aðrir þingmenn hafa 10 mínútur tvívegis.

Enn fremur er samkomulag um að andsvör verði leyfð frá upphafi umræðunnar, þó þannig að í fyrstu umferð verður aðeins talsmönnum þingflokka og fjármálaráðherra heimilt að veita andsvör. Gert er ráð fyrir að umræðunni ljúki síðar í dag eða í kvöld eftir atvikum.