133. löggjafarþing — 11. fundur,  12. okt. 2006.

heimsókn forseta norska Stórþingsins.

[13:30]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti norska þingsins, Thorbjørn Jagland, er staddur á þingpöllum. Forsetinn er staddur hér á landi í boði Alþingis. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta norska þingsins velkominn í Alþingishúsið og vænti þess að för hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli Alþingis og Stórþingsins.

Alþingi vottar forseta norska þingsins og norsku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]