133. löggjafarþing — 18. fundur,  1. nóv. 2006.

varamaður tekur þingsæti.

[13:30]
Hlusta

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá Sturlu Böðvarssyni, 1. þm. Norðvest., dagsett 31. október:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Adolf H. Berndsen, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Adolf H. Berndsen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.