embætti landlæknis.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir upplýsingarnar. En þær eru eiginlega í mótsögn við það sem hún sagði um 9. gr. Þar stendur að halda skuli skrá yfir óvænt atvik og í 10. gr. sömuleiðis. Þannig að þar er ein skráin í viðbót sem er skrá óvæntra atvika. Hún bætist við og hefði átt að vera í þessari upptalningu yfir skrár.
Ég skora á hæstv. heilbrigðisráðherra að kynna sér þær skrár sem eru á gangi í kerfinu og spyrja lækna og aðra hvort þær hafi læknisfræðilegan tilgang. Ég sé engan tilgang í að geyma afskaplega viðkvæmar persónulegar upplýsingar um aldur og ævi sem ekki hafa læknisfræðilegan tilgang, eins og t.d. fóstureyðingaskrár.