framboð verk- og tæknináms.
Frú forseti. Í áratugi hefur verið mikið rætt, ekki síst á hátíðum og tyllidögum, um gildi starfsnáms. Þrátt fyrir fagrar ræður og mikinn yfirlýstan vilja um að efla starfsnám má segja að á síðustu 30, 40 árum hafi afskaplega lítið gerst, svo dyggilega hefur latínu-gráni hreiðrað um sig í vitund þjóðarinnar að um og yfir 70% af nemendum sem fara í framhaldsskóla leita inn á stúdentsbrautir. Hvernig stendur á þessu? Það eru sjálfsagt margslungin svör en þetta viðhorf hefur hreiðrað um sig með þessum afleiðingum.
Ég hef stundum efast um að raunverulegur vilji sé í samfélaginu til þess að breyta þessu. Þær tillögur sem starfsnámsnefnd hefur skilað gætu verið ákveðinn grundvöllur að róttæku átaki sem fyrst og fremst þarf að lúta að því að það verði viðhorfsbreyting í samfélaginu hvað (Forseti hringir.) varðar virðingu fyrir starfsnámi.