133. löggjafarþing — 24. fundur,  9. nóv. 2006.

ástandið í Palestínu.

[10:54]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Það fer ekki á milli mála að með þessum hræðilegu aðgerðum hafa Ísraelsmenn skaðað sinn eigin málstað fyrir utan annað böl sem þeir hafa valdið. Ég endurtek það sem ég áður sagði, íslensk stjórnvöld fordæma þetta athæfi og munu koma þeim mótmælum á framfæri. Það er mikilvægt að nýta fundi og tengsl til að kynna þau sjónarmið og koma mótmælum formlega til skila.