133. löggjafarþing — 27. fundur,  15. nóv. 2006.

tilkynning um dagskrá.

[12:02]
Hlusta

Forseti (Sigríður A. Þórðardóttir):

Um klukkan hálffjögur í dag fer fram umræða utan dagskrár um flutning Landhelgisgæslunnar til Keflavíkur. Málshefjandi er hv. þm. Hjálmar Árnason. Hæstv. dómsmálaráðherra Björn Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.