133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[20:37]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég eða við í stjórnarliðinu erum alls ekki að víkja okkur undan þessari víðtæku og almennu framtíðarumræðu. Hins vegar eru hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar að reyna að koma sér undan því að ræða frumvarpið sem er til umræðu.