133. löggjafarþing — 45. fundur, 8. des. 2006.
upplýsingar og samráð í fyrirtækjum.
231. mál
Hæstv. forseti. Ég sætti mig ekki við það að við ljúkum þessu máli án þess að ég fái skýringar á því hvers vegna opinberri starfsemi er haldið fyrir utan lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjunum þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar samtaka launafólks á þessum vettvangi um að svo verði gert.