133. löggjafarþing — 45. fundur,  8. des. 2006.

lögheimili og skipulags- og byggingarlög.

220. mál
[12:18]
Hlusta

Frsm. félmn. (Dagný Jónsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti og umsagnir bárust frá mörgum aðilum.

Tilurð þessa frumvarps er sú að í nýlegum dómi Hæstaréttar Íslands var synjun sveitarfélags á skráningu lögheimilis í frístundabyggð talin fela í sér frávik frá stjórnarskrárvörðum rétti einstaklings til að ráða búsetu sinni, samanber 4. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Landið allt er samkvæmt lögum skipulagsskylt og þrátt fyrir að sveitarfélög hafi með höndum gerð skipulags virðist mega ráða af dómnum að þau hafi ekki heimild til að setja þessu frelsi einstaklinganna skorður nema á grundvelli skýrrar lagaheimildar og í þágu almannaheilla. Þar sem sveitarfélög inna af hendi margs konar þjónustu mun ótakmarkaður réttur til lögheimilisskráningar vera til þess fallinn að raska áætlunum og fjárhag þeirra og því gerir frumvarpið ráð fyrir að dvöl í skipulagðri frístundabyggð skuli ekki jafnað til lögheimilis eftir 1. janúar 2007.

Á fundum nefndarinnar hafa komið fram þau sjónarmið að gildissvið frumvarpsins sé of takmarkað og að það skilji eftir önnur álitaefni tengd lögheimilisskráningu sem sum hver hafa risið eftir fyrrgreindan dóm. Í frumvarpinu er til að mynda tekið fram að því sé ekki ætlað að útiloka skráningu lögheimilis í sumarhúsum sem standa utan skipulagðrar frístundabyggðar ef viðkomandi einstaklingur á þar fasta búsetu. Annað álitaefni varðar það hvort réttur einstaklinga standi til þess að fá lögheimili skráð í atvinnuhúsnæði en um þetta ber sveitarfélögum ekki saman. Tvíþætt eðli lögheimilisskráningar, sem annars vegar felst í þeirri áherslu að hún fari saman við raunverulega búsetu og hins vegar í því að hún færi einstaklingum ýmis réttindi, gerir það að verkum að afstaða sveitarfélaga til hennar er á reiki. Af þessu leiðir að halda má fram sams konar röksemdum gegn skráningu lögheimilis í atvinnuhúsnæði og eiga við um skráningu í skipulagðri frístundabyggð óháð því hvar umsækjandinn er raunverulega með fasta búsetu. Sjónarmið um öryggi borgaranna kunna aftur á móti að standa til þess að skráning fari fram í því augnamiði að opinberir aðilar, eins og þeir sem hafa með höndum brunaeftirlit og heilbrigðiseftirlit, hafi vitneskju um hvar fólk býr raunverulega.

Skráning lögheimilis hefur áhrif á framkvæmd ýmissa laga og þess vegna leggur nefndin áherslu á að allir hlutaðeigandi aðilar komi saman til að ná sátt um heildarstefnumótun og útfærslu lögheimilisskráningar að teknu tilliti til þeirra réttinda sem henni eru samfara. Nefndin fagnar nýlegri ákvörðun félagsmálaráðherra um að koma á fót starfshópi til að fjalla um vandamál sem tengjast fastri búsetu í atvinnuhúsnæði. Væntir nefndin þess að tillögur starfshópsins liggi fyrir nægilega fljótt til að hægt verði að gera nauðsynlegar og varanlegar lagabreytingar fyrir lok vorþings.

Virðulegi forseti. Hér viðurkenni ég og bendi á að vantar inn dagsetningu sem um var rætt í félagsmálanefnd, þ.e. að starfshópurinn skili af sér fyrir 31. janúar 2007, en það er mjög mikilvægt að hópurinn vinni hratt.

Þá bendir nefndin á að þar sem dómsmálaráðherra fer með stjórn Þjóðskrár sé eðlilegt að breytingar á lögheimilislögum muni í framtíðinni heyra undir hans verkefnasvið.

Nefndin leggur til þá breytingartillögu að skráning lögheimilis í frístundabyggð sem framkvæmd hefur verið fyrir 1. janúar 2007 verði bundin við persónu rétthafa og þá sem eru nákomnir honum en falli niður við flutning þeirra úr viðkomandi húseign. Frumvarpið gerir ráð fyrir að réttur til lögheimilis sé bundinn við viðkomandi húseign en með breytingunni er ætlunin að stuðla að auknu jafnvægi milli hagsmuna einstakra fasteignareigenda í sömu frístundabyggð.

Nefndin mælir með að frumvarpið verði samþykkt með fyrrnefndri breytingu sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Undir nefndarálitið rita Dagný Jónsdóttir, Kjartan Ólafsson, Guðjón Hjörleifsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Lúðvík Bergvinsson, Helgi Hjörvar, Pétur H. Blöndal, Birkir Jón Jónsson og Magnús Þór Hafsteinsson.

Virðulegi forseti. Ég vil geta þess að ég sem formaður félagsmálanefndar sat fund með hæstv. félagsmálaráðherra, fulltrúum Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðarbæjar og umhverfisráðuneytis þar sem fjallað var um skráningu lögheimilis í atvinnuhúsnæði. Menn voru sammála um að vinna að því álitaefni sem skráning í atvinnuhúsnæði er. Ég vil nota tækifærið og þakka nefndarmönnum í hv. félagsmálanefnd í þessu máli því að samstaða ríkir um að kippa þessu í lag og ég er sannfærð um að frumkvæði félagsmálanefndar í málinu varð til þess að koma því í réttan farveg og við munum því væntanlega fá það aftur inn á okkar borð eftir áramót.