133. löggjafarþing — 47. fundur,  9. des. 2006.

búnaðarfræðsla.

189. mál
[11:15]
Hlusta

Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf):

Frú forseti. Það hefur komið fram í máli bæði fulltrúa starfsmanna við Hólaskóla og rektorsins að ekki þyki ástæða til að amast við frumvarpsákvæðinu eins og það kom fyrir þannig að við samþykkjum frumvarpið eins og það liggur fyrir af hálfu nefndarinnar.