133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

samgönguáætlun fyrir árin 2007--2010.

574. mál
[18:38]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kem fyrst og fremst upp til að taka heils hugar undir áherslur í máli hv. þm. Önnu Kristínar Gunnarsdóttur og vil segja að lokum að það væri óskandi að við gætum sameinast um það á þinginu að færa þjóðinni þá gjöf að gera strandsiglingar að veruleika að nýju.