133. löggjafarþing — 78. fundur,  26. feb. 2007.

umræðuefni í athugasemdum.

[15:37]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Vegna þessara orða hv. þingmanns vill forseti upplýsa að beiðni hans um utandagskrárumræðu um þetta efni er á þeim lista þar sem eru aðrar beiðnir um utandagskrárumræðu en það hefur hins vegar ekki verið afgreitt hvort eða hvenær af þeirri umræðu verður. Hygg ég að þeir hv. þingflokksformenn sem hér eru geti staðfest þær upplýsingar forseta þar sem það mál var rætt sérstaklega á fundi forseta með þingflokksformönnum í hádeginu í dag.