135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

tekjuskattur.

325. mál
[11:32]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Eins og fram hefur komið verður þessi skattur aldrei greiddur, það er raunveruleikinn. Sú tillaga sem við ræðum hér gerir ráð fyrir að hann verði samt greiddur. Þetta er sem sagt afturvirkt og íþyngjandi og ég greiði atkvæði gegn því.