135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

almannavarnir.

190. mál
[21:23]
Hlusta

Atli Gíslason (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Meiri hluti allsherjarnefndar hefur gert 20 breytingar á frumvarpinu og sumar þeirra í mörgum liðum sem sýnir að frumvarpssmíðin var óvönduð. Þessar breytingar eru að mínu mati til bóta. Auk þess hefur minni hlutinn til að bæta enn um betur gert 13 tillögur til breytinga á frumvarpinu og við segjum já við öllum þeim breytingartillögum.