136. löggjafarþing — 111. fundur,  23. mars 2009.

embætti sérstaks saksóknara.

393. mál
[19:04]
Horfa

Frsm. allshn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti allsherjarnefndar um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 135 frá 11. desember 2008, um embætti sérstaks saksóknara.

Með frumvarpinu er lagt til að afmarkaðar verði með skýrari hætti og rýmkaðar þær heimildir sem sérstakur saksóknari hefur til öflunar upplýsinga og gagna vegna rannsóknar einstakra mála. Þá er einnig lagt til að skylt sé að verða við kröfu embættisins um að láta í té upplýsingar og gögn þótt þau séu háð þagnarskyldu samkvæmt reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem felur í sér að vikið verði frá skyldu 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, til að auglýsa störf hjá embætti sérstaks saksóknara til að ekki þurfi að fara í þungt ferli til að ráða starfsmenn til starfa hjá embættinu. Slíkir starfsmenn eru, eftir því sem fram kom hjá hinum sérstaka saksóknara þegar hann kom fyrir allsherjarnefnd, einkum hjá embætti efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og auðgunarbrotadeildar lögreglustjóraembættisins á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem embætti hins sérstaka saksóknara er tímabundið eru menn ekki ráðnir þangað til langframa og unnt þarf að vera að kalla menn til verkefna án mikillar fyrirhafnar og tíma við að fara í gegnum umsóknarferli. Ákvæðið tekur mið af heimild sem rannsóknarnefnd þingsins hefur til ráðningar fólks. Ekki er þó ætlunin með þessum breytingum að víkja frá málefnalegum sjónarmiðum og gagnsæi, sem eftir sem áður þarf að gæta við ráðningu starfsmanna. Það kom sérstaklega fram í umræðum í nefndinni að mikilvægt væri að gætt yrði, sem kostur er, að öllum slíkum faglegum sjónarmiðum við ráðningu starfsmanna eftir sem áður þótt auglýsingaskyldunni væri létt af hinum sérstaka saksóknara í þessu efni.

Þá leggur nefndin einnig til smávægilegar breytingar á frumvarpinu sem tengjast frumvarpi viðskiptaráðherra um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem fyrir þinginu liggja á þskj. 693, en þar eru lagðar til breytingar á hugtökum og er nauðsynlegt að taka þær breytingar upp í þetta frumvarp til að gæta samræmis.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir.

Hv. þm. Ólöf Nordal og Ágúst Ólafur Ágústsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Álfheiður Ingadóttir, Birgir Ármannsson, Árni Þór Sigurðsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Siv Friðleifsdóttir og Jón Magnússon.