137. löggjafarþing — 5. fundur,  25. maí 2009.

efnahagshorfur, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:42]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Röð flokkanna er þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Borgarahreyfing.

Umferðir verða þrjár og skiptist ræðutími sem hér segir: Forsætisráðherra hefur 15 mínútur til framsögu en aðrir flokkar hafa 10 mínútur fyrir talsmenn í fyrstu umferð en síðan 5 mínútur í annarri og þriðju umferð. Forsætisráðherra hefur 5 mínútur í lok umræðunnar.