137. löggjafarþing — 13. fundur,  3. júní 2009.

varamaður tekur þingsæti.

[13:33]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá hv. 4. þm. Suðurk., Atla Gíslasyni, um að hann geti ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur af persónulegum ástæðum.

Í dag tekur sæti á Alþingi 1. varamaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Arndís Soffía Sigurðardóttir ferðaþjónustubóndi. Kjörbréf hennar hefur þegar verið rannsakað. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Arndís Soffía Sigurðardóttir , 4. þm. Suðurk., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]