137. löggjafarþing — 13. fundur,  3. júní 2009.

tilkynning um dagskrá.

[13:34]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 3 í dag fer fram utandagskrárumræða um stöðu heimilanna. Málshefjandi er hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 3. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í tæpa klukkustund.