137. löggjafarþing — 15. fundur,  5. júní 2009.

Icesave-reikningarnir.

[10:55]
Horfa

Þór Saari (Bhr):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að hafa svarað hluta spurninga minna. Það sem ég vildi gjarnan ítreka og fá á hreint er hvort að samningurinn sem slíkur og allar þær ábyrgðir sem honum fylgja verði kynntar og bornar undir þingið áður en skrifað verður undir eitthvað af hálfu ríkisstjórnarinnar í þessu máli.