137. löggjafarþing — 19. fundur,  15. júní 2009.

framlagning mála ríkisstjórnarinnar, dagskrá þingsins o.fl.

[15:49]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill benda hv. þingmönnum á að á morgun er fyrirspurnatími og það bíða yfir 20 fyrirspurnir eftir því að verða ræddar og fá svör frá hæstv. ráðherrum og munum við reyna að klára það sem þar liggur fyrir. Síðan eru næg mál til umræðu og forseti ræddi það einmitt við þingflokksformenn á fundi fyrr í dag.