137. löggjafarþing — 22. fundur,  18. júní 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[14:17]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Það er rétt sem fram hefur komið hér í máli tveggja hv. þingmanna, að frumvarpið tók svolítilli breytingu við 3. umr. Ég vil hins vegar, svo að það sé sagt úr þessum ræðustóli, koma því skýrt á framfæri við þingheim að minni hluti nefndarinnar hefur ekki flutt eina einustu breytingartillögu við þetta frumvarp.