ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Eygló Harðardóttur varðandi þetta atriði og ég vil einnig minna hæstv. forseta Alþingis, sem er nú komin í salinn, á það að þegar ákveðið var að fjölga þingdögum vegna brýnna mála og hafa þingfundi á föstudögum var það gert þvert á andmæli okkar ýmissa landsbyggðarþingmanna — og ég horfi hér á hv. þm. Gunnar Braga Sveinsson — vegna þess að þetta er sá dagur sem hefur í gegnum tíðina verið notaður af okkur landsbyggðarþingmönnum til þess að fara út og funda með kjósendum okkar. Þá vorum við fullvissuð um það að þessi fundardagur yrði notaður mjög sparlega og hann yrði alltaf stuttur þannig að við hefðum tækifæri til þess að ferðast um langan veg ef við þyrftum að fara út í kjördæmi okkar.
Það er eins og með svo margt annað í stjórn þingsins þessa dagana að greinilegt er að ýmislegt gleymist sem sagt hefur verið.