139. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2010.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:05]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sbr. 73. gr. þingskapa, verður flutt mánudagskvöldið 4. október og hefst umræðan kl. 19.50. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða þrjár, 12 mínútur, sex mínútur og fimm mínútur, en forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu. Umræðunni lýkur rétt fyrir kl. 22.