139. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2010.

afbrigði um sætishlutun.

[16:06]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgr. 3. gr. þingskapa um hvernig hluta skal um sæti þingmanna, þannig að hv. þm. Helgi Hjörvar geti fengið sæti sem honum hentar sérstaklega. Þetta er sæti 32 fyrir hv. þm. Helga Hjörvar.

Enn fremur hefur orðið samkomulag milli forseta og formanna þingflokka um að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi í salnum fyrir formennina en þeir dragi sérstaklega innbyrðis um þessi sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Samkvæmt þessu hefur Árni Þór Sigurðsson sæti 8, Gunnar Bragi Sveinsson sæti 45, Margrét Tryggvadóttir sæti 22, Ragnheiður E. Árnadóttir sæti 23 og Þórunn Sveinbjarnardóttir sæti 44.